Um hlaupið

Laugavegshlaupið er 55 kílómetra langt utanvegahlaup sem haldið verður í 28. sinn þann 12. júlí 2025. Laugavegurinn tengir saman Landmannalaugar og Þórsmörk á sunnanverðu hálendi Íslands, tvær náttúruperlur. Staðsetningin gerir það að verkum að Laugavegurinn er einungis þjónustaður í nokkrar vikur á ári. Í hugum margra hlaupara er Laugavegshlaupið skemmtilegasta hlaupið á Íslandi. Á þessari krefjandi leið verða hlauparar vitni að ótrúlegri náttúrufegurð. Göngugarpar eru venjulega 4 daga á leið sinni um Laugaveginn. Undirlendið er fjölbreytt þar sem hlaupið er á sandi og möl, í grasi og snjó, á ís, yfir ár og læki.

Laugavegshlaupið er ekki fyrir gangandi þátttakendur en er ætlað reynslumiklum hlaupurum 18 ára og eldri sem eru í mjög góðri alhliða líkamlegri þjálfun og geta uppfyllt eftirfarandi skilyrði:

  • Góður hlaupagrunnur og reynsla í að hlaupa langar vegalengdir utanvega að lágmarki 30 km. 
  • Þátttökuskilyrðin eru 370 ITRA stig. Hlauparar geta fengið ITRA stig með því að taka þátt í utanvegahlaupum sem eru viðurkennd af ITRA samtökunum (International Trail Running Association). Fjölmörg hlaup á Íslandi og um allan heim eru aðilar að þessum samtökum.
  • Þekkja sín takmörk og vera nægjanlega andlega sterk til að bjarga sér við erfiðar aðstæður.
  • Uppfylla kröfur um öryggisbúnað. Samkvæmt reglum hlaupsins eiga allir þátttakendur að hafa með sér álteppi, flautu, jakka og síma með neyðarnúmerinu 112 vistað í símann. Áður en hlauparar leggja af stað munu starfsfólk hlaupsins ganga úr skugga um að allir hafi þessa öryggishluti með sér, ef þátttakendur hafa þá ekki með sér verður 60 mínútum bætt við lokatíma þeirra í hlaupinu sem refsing.
  • Þekki tímatakmörk hlaupsins sem eru 4 klst út af drykkjarstöðinni við Álftavatn (22 km) og 6 klst og 30 mín út af drykkjarstöðinni í Emstrum (38 km) og miði þjálfun og æfingar sínar útfrá því. Miðað er við að þátttakendur ljúki hlaupinu á innan við 9 klukkustundum og 15 mínútum. Sjá nánar: Tímatakmörk
  • Þekkja og skilja mikilvægi viðeigandi fatnaðar og næringar. Sjá nánar: Undirbúningur hlaupara
  • Séu tilbúin að kynna sér og fara eftir reglum og skipulagi hlaupsins.
  • Skrifa undir skilmála við afhendingu hlaupagagna. Sjá nánar: Skilmálar

Styrktaraðilar

  • Reykjavik Excursions
  • Corsa
  • 66 Norður
  • Suzuki
  • Volcano Huts
  • Ferðafélag Íslands
  • ITRA member
  • Gatorade