Skráning í Laugavegshlaupið 2025 opnaði í gær, þann 6. nóvember og hefur skráning gengið vonum framar!
Skráningarfyrirkomulagið fyrir árið 2025 verður svipað og árið 2024. Skráningin opnar þann 6. nóvember og verður opin í viku, eða til 14. nóvember. Þátttökuskilyrðin eru 370 ITRA stig.
Sæti verða á boði fyrir stigahæstu hlauparana í fyrsta sæta úthlutuninni og verður þetta skipt jafnt milli kynja. Þau sem ekki fá sæti í fyrstu úthlutun fara í lottóið sem dregið verður úr.
Mikilvægt er að allar upplýsingar um ITRA stigin í umsókninni komi skýrt fram og séu réttar.